Til baka
24
nóv
EPILS (sérhæfð endurlífgun barna 1)
Tímabil:
24/11/2024
Skráningu líkur:
17/10/2024
Lengd:
8 kennslustundir
Staðsetning:
Fáskrúðsfjörður Slökkvistöð
Hámarksfjöldi:
16 manns
Kennarar:
Sigurjón Valmundarson,
Sveinbjörn Dúason
Umsjónarmaður:
Sveinbjörn Dúason
ERC námskeið: Sérhæfð endurlífgun barna 1 (EPILS). Haldið að beiðni Slökkviliðs Fjarðabyggðar
Markmið: | Markmiðið er að þjálfa heilbrigðisstarfsfólk í aðgerðum til að koma í veg fyrir hjartastopp, beita grunnendurlífgun þ.e. hjartahnoði öndunarhjálp og rafstuði þar til sérhæfð aðstoð berst. Tilgangurinn með þeirri þjálfun felst í því að gera starfsmanninn færari um að taka þátt í endurlífgun sem meðlimur teymisins. | ||
Viðfangsefni: | Námskeiðið er haldið í samvinnu við Endurlífgunarráð Íslands og Evrópska Endurlífgunarráðsins. Það er byggt á stöðlum evrópska endurlífgunarráðsins og kennt samkvæmt því. Námskeiðið er samansett af fyrirlestrum, verklegum æfingum og umræðum. Í fyrirlestrum er farið yfir orsakir og forvarnir hjartastopps og vinnuferla við endurlífgun. Í verklegum stöðvum er lögð áhersla á frumskoðun og endurlífgun, öndunarhjálp og teymisvinnu í endurlífgun. Mest er áhersla á verklegar æfingar og virka þátttöku nemandans. | ||
Inntökuskilyrði: | Heilbrigðisstarfsfólk sem kemur sjaldan að endurlífgun en þarf samt að geta brugðist við og tekið þátt í endurlífgun t.d. sjúkra- og neyðarflutningamenn, læknar, hjúkrunarfræðingar, hjúkrunarfræði- og læknanemar. | ||
Námsmat: | Símat á virkni og getu nemenda. | ||
Námsefni: | Námsefnið er rafrænt, aðgengilegt á vef ERC þegar skráning hefur verið staðfest og er innifalið í verði námskeiðsins. Nemendur skulu hafa lokið rafræna hlutanum áður en að verklegum hluta námskeiðsins kemur.
Verð námskeiðs: 60.000,-
|