Fara í efni
Til baka
7
feb
Grunnnámskeið í sjúkraflutningum (EMT) streymisnámskeið Akureyri EMT Vor
Tímabil: 07/02/2025 - 06/04/2025
Skráningu líkur: 16/11/2024
Lengd: 260 kennslustundir
Staðsetning: Slökkvistöðin á Akureyri við Árstíg
Hámarksfjöldi: 12 manns
Kennari:
Eydís Sigurgeirsdóttir
Umsjónarmaður: Eydís Sigurgeirsdóttir

Streymisnámskeið með verklegum lotum á Akureyri. Bóklegur hluti námskeiðs verður í gegnum Moodle kennslukerfis Sjúkraflutningaskólans á netinu. https://moodle.ems.is. Verklegar lotur verða á Slökkvistöð Slökkviliðs Akureyrar sem hér segir: Sett inn þegar nær dregur. Verklegar lotur eru fimm og hver lota eru 3 dagar.

Gert er ráð fyrir að starfsþjálfun fari fram í apríl-maí.

Skyldumæting er í allar verklegar lotur!


Streymisnámskeið með verklegum lotum á Akureyri. Bóklegur hluti námskeiðs verður í gegnum Moodle kennslukerfis Sjúkraflutningaskólans á netinu. https://moodle.ems.is. Verklegar lotur verða á Slökkvistöð Slökkviliðs Akureyrar sem hér segir: Sett inn þegar nær dregur.  Verklegar lotur eru fimm og hver lota eru 3 dagar.

Gert er ráð fyrir að starfsþjálfun fari fram í apríl-maí.

Skyldumæting er í allar verklegar lotur!

Markmið:
  Að nemendur verði færir um að tryggja öryggi á vettvangi og meta ástand sjúklings. Þeir þurfa einnig að geta meðhöndlað og flutt sjúkling(a) á viðeigandi hátt.

Námskeiðið er í grunninn byggt á viðurkenndum bandarískum EMT staðli (Emergency Medical Technician) og inniheldur bæði bóklega og verklega kennslu en er þó staðfært miðað við íslenskar aðstæður. Það er upphafið á heildarnámi sjúkraflutningamanna sem áætlað er að taki 3-4 ár.

Viðfangsefni:
  Í fyrirlestrunum er m.a. fjallað um starf sjúkraflutningamanna, öryggi, sóttvarnir og heilsuvernd. líffæra- og lífeðlisfræði, lífsmörk, öndunarhjálp, endurlífgun, skoðun og mat, almenna flutningstækni, skráningu og skýrslugerð, fæðingarhjálp, meðhöndlun sára og áverka svo eitthvað sé nefnt. Nemendur fá einnig viðeigandi verklega þjálfun í ofangreindum kennsluþáttum. Nemendur þurfa að ljúka 48 klukkustunda starfsþjálfun hjá viðurkenndum rekstraraðila í sjúkraflutningum sem uppfylla kröfur um starfsþjálfun, auk 8 klukkustunda starfsþjálfunar á bráðamóttöku.
Skilyrði:
 

Umsækjandi skal hafa lokið 100 Framhaldsskólaeiningum  úr námi í framhaldsskóla eða sambærilegu námi og hafa innan við tveggja ára gamalt skírteini í skyndihjálp, að lágmarki 8 kennslustundir.

Umsækjandi þarf að vera 18 ára á því ári sem nám er hafið. Rétt er að geta þess að flestir rekstraraðilar gera kröfu um að sjúkraflutningamenn séu 20 ára.

Ef fleiri sækja um en sæti leyfa er raðað eftir menntun og reynslu umsækjenda.

Kröfur:

Grunnnámskeiðinu lýkur með prófi, bæði bóklegu og verklegu. Krafist er 75% árangurs í skriflegu prófi og nemendur skulu standast verkleg próf. Farið er fram á skyldumætingu í fyrirlestra og verklegar æfingar. Nemendur þurfa einnig að ljúka starfsþjálfun á sjúkrabílum og bráðamótttöku og skila fullnægjandi starfsþjálfunarskýrslum. Að því loknu geta nemendur sótt um löggildingu til að hefja störf sem sjúkraflutningamenn með grunnmenntun.

Tilhögun starfsþjálfunar í grunnnámi.

Í skipulagi Fagráðs skólans um námið er skýrt að starfsþjálfun þarf að taka á ákveðin hátt.

Þjálfun á sjúkrabíl 48 tímar.

Þar þarf að taka lágmark 24 tíma sem þriðji maður á sjúkrabíl undir leiðsögn bráðatæknis, 24 tíma má taka sem þriðji maður á almennum bíl undir leiðsögn amk. neyðarflutningamanns. Vaktirnar skal taka þar sem eru sólarhringsvaktir og lágmarksfjöldi sjúkraflutinga er yfir 1000 á ári.

Lágmarksfjöldi tilfella er 12-15 tilfelli (eftir dreifingu) og skulu þau spanna sem mest þau tilfelli sem sjúkraflutingamenn þurfa að kunna skil á í náminu.

Ein 8 tíma vakt skal taka á Bráðamóttöku Landspítala, HSU Selfossi, HSS Keflavík eða Sjúkrahússins á Akureyri.

Undirrituðum skýrslum og staðfestingu á vöktum skal skila til skrifstofu skólans þegar allar vaktir hafa verið teknar. Einnig má skila þeim í tölvupósti skönnuðum á PDF formi.

Athugið að til þess að starfa sem sjúkraflutningamaður þar viðkomandi að hafa fengið löggildingu sem sjúkraflutningamaður.

Kennslubók:

Kennslubók: Emergency Care, 14/E (má einnig nota útgáfu 13)

Limmer, O'Keefe, Grant, Murray, Bergeron & Dickinson

ISBN-10: 0134024559 • ISBN-13: 9780136873242

©2021 (2016 fyrir 13 útgáfu)

Athugið að kennslubókin eru ekki innifalin á námskeiðsverði en hægt að panta bæði á erlendum bókasölum en einnig hjá Bóksölu studenta. Panta þarf bókina með fyrirvara.

ISBN númerið er einskonar kennitala bókarinnar til að tryggja að um sé að ræða rétta bók. Kennslubókin hefur tvö ISBN númer, bæði í flokki 10 og 13 en þetta er sama bókin.

Umsóknarfrestur:

Umsóknarfrestur er til og með 15. nóvember. Væntanlegir nemendur verða að skrá sig á vef skólans og senda gögn til staðfestingar inntökuskilyrðunum. Gögnin eru staðfest afrit frá skóla þar sem fram koma einingar og prófskírteini ef námi er lokið (lágmark 100 Framhaldsskólaeiningum) og þátttöku á skyndihjálparnámskeiði eða sambærilegu. Athugið að miðað er við gild réttindi í skyndihjálp.

Gögnin skulu hafa borist skólanum fyrir lok skráningarfrests. Senda skal gögnin sem PDF viðhengi á netfangið ems@ems.is

Verð: 445.000,-

Eftir að gögn hafa borist skólanum fer inntökunefnd í gegnum umsóknir. Þegar niðurstöður hennar liggja fyrir fá nemendur sem komast í námið upplýsingar um greiðslu staðfestingargjalds kr. 70.000. Staðfestingargjald fæst ekki endurgreitt. Eftirstöðvar kr. 375 þúsund verða rukkaðar meðan á námi stendur.