Fara í efni
Til baka
22
jan
Grunnnámskeið í sjúkraflutningum (EMT) streymisnámskeið Selfoss EMT Haust
Tímabil: 22/01/2024 - 20/03/2024
Skráningu líkur: 16/11/2023
Lengd: 261 kennslustundir
Staðsetning: Selfoss Björgunarmiðstöð
Hámarksfjöldi: 12 manns
Kennari:
Kjartan Kárason
Verð: 390.000 kr.
Umsjónarmaður: Kjartan Kárason

Bóklegt efni á Moodle, verklegar lotur verða sem hér segir:

Lota 1. 22.-23. janúar

Lota 2. 5.-7. febrúar

Lota 3. 19.-21. febrúar

Lota 4. 4.-6. mars

Lota 5. 18.-20. mars sem jafnframt er prófahelgi.

Skyldumæting er í allar verklegar lotur

Staðsetning:

Streymisnámskeið með verklegum lotum á Selfossi. Bóklegur hluti námskeiðs verður í gegnum Moodle kennslukerfis Sjúkraflutningaskólans á netinu. https://moodle.ems.is.

Verklegar lotur verða á Björgunarmiðstöðinni á Selfossi, ath að verklegar lotur eru á virkum dögum á Selfossi, mánudaga-miðvikudaga.

Skyldumæting er í allar verklegar lotur!

Gert er ráð fyrir að starfsþjálfun fari fram í nóv-des.

 

Markmið:
Að nemendur verði færir um að tryggja öryggi á vettvangi og meta ástand sjúklings. Þeir þurfa einnig að geta meðhöndlað og flutt sjúkling(a) á viðeigandi hátt.

Námskeiðið er í grunninn byggt á viðurkenndum bandarískum EMT staðli (Emergency Medical Technician) og inniheldur bæði bóklega og verklega kennslu en er þó staðfært miðað við íslenskar aðstæður. Það er upphafið á heildarnámi sjúkraflutningamanna sem áætlað er að taki 3-4 ár.

Inntökuskilyrði:

Umsækjandi skal hafa lokið 100 Framhaldsskólaeiningum (60 gamlar einingar) námi í framhaldsskóla eða sambærilegu námi og hafa innan við tveggja ára gamalt skírteini í skyndihjálp, að lágmarki 8 kennslustundir.

Umsækjandi þarf að vera 18 ára á því ári sem nám er hafið. Rétt er að geta þess að flestir rekstraraðilar gera kröfu um að sjúkraflutningamenn séu 20 ára.

Ef fleiri sækja um en sæti leyfa er raðað eftir menntun og reynslu umsækjenda.

 
Námsmat:

 

Grunnnámskeiðinu lýkur með prófi, bæði bóklegu og verklegu. Krafist er 75% árangurs í skriflegu prófi og nemendur skulu standast verkleg próf. Farið er fram á skyldumætingu í fyrirlestra og verklegar æfingar. Nemendur þurfa einnig að ljúka starfsþjálfun á sjúkrabílum og bráðamótttöku og skila fullnægjandi starfsþjálfunarskýrslum. Að því loknu geta nemendur sótt um löggildingu til að hefja störf sem sjúkraflutningamenn með grunnmenntun.

Athugið að til þess að starfa sem sjúkraflutningamaður þar viðkomandi að hafa fengið löggildingu sem sjúkraflutningamaður.

 
Námsefni:

Kennslubók: Emergency Care, 13/E

Limmer, O'Keefe, Grant, Murray, Bergeron & Dickinson

ISBN-10: 0134024559 • ISBN-13: 9780134024554

©2016

Athugið að kennslubókin eru ekki innifalin á námskeiðsverði en hægt að panta bæði á erlendum bókasölum en einnig hjá Bóksölu studenta. Panta þarf bókina með fyrirvara.

ISBN númerið er einskonar kennitala bókarinnar til að tryggja að um sé að ræða rétta bók. Kennslubókin hefur tvö ISBN númer, bæði í flokki 10 og 13 en þetta er sama bókin.

 
Skráningartími:

Umsóknarfrestur er til og með 15. ágúst. Væntanlegir nemendur verða að skrá sig á vef skólans og senda gögn til staðfestingar inntökuskilyrðunum. Gögnin eru staðfest afrit frá skóla þar sem fram koma einingar og prófskírteini ef námi er lokið (lágmark 100 Framhaldsskólaeiningum (60 gamlar einingar) ) og þátttöku á skyndihjálparnámskeiði eða sambærilegu. Athugið að miðað er við gild réttindi í skyndihjálp. Senda skal gögnin sem PDF viðhengi á netfangið ems@ems.is

Gögnin skulu hafa borist skólanum fyrir lok skráningarfrests. Senda skal gögnin sem PDF viðhengi á netfangið ems@ems.is

Eftir að gögn hafa borist skólanum fer inntökunefnd í gegnum umsóknir. Þegar niðurstöður hennar liggja fyrir fá nemendur sem komast í námið upplýsingar um greiðslu staðfestingargjalds kr. 70.000. Staðfestingargjald fæst ekki endurgreitt en dregst frá heildarverði námskeiðs sem er 445.000,-